Fotbolti.net
14.10.26 - 18:16
Brynjar Ingi Erluson

Sancho á leið til Spánar?

Jadon Sancho

Jadon Sancho

Canon

Mynd: EPA

Enski vængmaðurinn Jadon Sancho hefur verið án félags síðan samningur hans við Manchester United rann út í sumar, en nú gæti loksins verið að rofa til hjá Englendingnum.
Sancho, sem er 26 ára gamall, var á sínum tíma einn eftirsóttasti vængmaður heims þegar hann lék með Borussia Dortmund. Ferillinn hefur hins vegar verið á niðurleið síðan hann gekk til liðs við United árið 2021.

Hann hefur aldrei náð sér almennilega á strik síðan, þrátt fyrir lánsdvöl hjá Dortmund, Aston Villa og Chelsea.

Samkvæmt DAZN gæti Sancho nú fengið tækifæri til að endurvekja ferilinn á Spáni, en Getafe er sagt undirbúa veglegt samningstilboð fyrir Englendinginn.

Getafe hefur áður reynst góður áfangastaður fyrir leikmann sem átti erfitt uppdráttar hjá United. Mason Greenwood fór þangað á láni eftir að framtíð hans hjá enska félaginu var komin í uppnám vegna alvarlegra ásakana um ofbeldi.

Greenwood fann sig aftur á Spáni og vakti athygli fyrir frammistöðu sína áður en hann gekk til liðs við Marseille þar sem hann lét einnig til sín taka.

Getafe fékk á dögunum Dani Carvajal, sem vann fjölda titla á löngum ferli hjá Real Madrid, og vill nú styrkja sóknarlínuna.

Fyrir Sancho gæti þetta verið kærkomið tækifæri til að koma ferlinum aftur á skrið. Það vita allir hvað hann getur þegar hann er upp á sitt besta, en Englendingurinn hefur átt erfitt með að finna aftur sitt gamla form undanfarin ár.
Sancho á leið til Spánar?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.