Fotbolti.net
13.10.26 - 21:33
Brynjar Ingi Erluson

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Lisandro Martínez

Lisandro Martínez

Canon

Mynd: EPA

Argentínski miðvörðurinn Lisandro Martínez kom á óvart með harðri gagnrýni á Jason Wilcox, tæknilegan stjórnanda Manchester United, eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Man Utd tapaði og Yoro sá rautt í Madríd - Óvænt úrslit í Noregi
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Man Utd tapaði og Yoro sá rautt í Madríd - Óvænt úrslit í Noregi

Martínez lét óánægju sína með stjórn Manchester United berlega í ljós eftir leikinn og gagnrýndi félagið harðlega fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.

Hann telur að stjórnarmenn United hafi ekki gert nóg til að undirbúa liðið fyrir átök tímabilsins.

„Þetta er mjög slakt. Ég verð að hemja mig mikið, en stundum er þetta bara endurspeglun af því hvernig félagið okkar er í augnablikinu.“

„Við áttum frábært síðasta tímabil og núna búumst við meiru frá þeim sem eru þarna í toppstöðunum. Við þurfum fleiri leikmenn til að veita samkeppni því önnur félög fá inn marga leikmenn á sama tíma. Atlético er með frábært lið og áttu sigurinn skilið í dag.“


Martínez beindi gagnrýninni sérstaklega að Jason Wilcox, sem fer með íþróttamál félagsins, og kallaði eftir meiri fjárfestingu í leikmannahópnum.

„Ég býst við meiri (fjárfestingu). Það er 100 prósent og ég býst við meira frá tæknilegum stjórnanda félagsins (Jason Wilcox). Ég verð að vera hreinskilinn að við leikmenn þurfum að gera meira, en það er líka mikilvægt að byggja sterkan hóp svo við séum tilbúnir fyrir svona kvöld,“ sagði Martínez.

Hann var þá spurður hvar United þyrfti helst að styrkja sig.

„Bara almennt. Við gerðum allt á síðasta tímabili og sköpuðum grunninn fyrir því að búa til frábært lið.“

„Þetta er pirrandi og vonbrigði að koma hingað og ég sé ekki liðið mitt reyna að ná stórkostlegum úrslitum hér.“


Martínez var einnig spurður hvort honum þætti Michael Carrick ekki hafa fengið nægan stuðning frá stjórn félagsins í sumar.

„Mér finnst það ekki. Hann gerir sitt besta og öll tímabil eru ólík, en þú getur ekki haldið í það sem þú gerðir á síðasta tímabili. Liðin vita hvernig þú spilar, þekkja hvert einasta smáatriði og ef þú breytir ekki einhverju tímabilið á eftir þá koma upp stór vandamál.“

Argentínumaðurinn telur að vandamál United nái lengra en til stjórans og leikmannanna og að félagið þurfi að skoða fleiri þætti í eigin rekstri.

„Þú getur ekki haldið áfram að breyta um stjóra. Hvað með önnur svæði? Ég get ekki sagt mikið meira.“

„Það er auðvelt að klína þessu á stjórann og leikmennina, en við verðum að skoða aðrar deildir líka,“ sagði Martínez.
Jason Wilcox fékk að heyra það

Jason Wilcox fékk að heyra það

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick

Michael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.