Fotbolti.net
14.10.26 - 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Af hverju eyðir Man Utd ekki meiru?

Úr leik hjá Man Utd á tímabilinu.

Úr leik hjá Man Utd á tímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Rob Dorsett, fréttamaður Sky Sports News, segir að fjárhagsstaða Manchester United setji félaginu skorður á leikmannamarkaðnum, þrátt fyrir miklar tekjur. Félagið skilaði mettekjum upp á 678 milljónir punda á síðasta ári en var engu að síður rekið með 47 milljóna punda tapi fyrir skatt.

Manchester United hefur verið mikil til umræðu eftir að Lisandro Martinez, leikmaður liðsins, gagnrýndi félagið opinberlega eftir tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær.
Martínez fór mikinn í viðtali eftir 2-0 tap gegn Atletico Madrid og gagnrýndi félagið í leikmannálum. Hann segir að stjórnendur félagsins beri ábyrgð á því að leikmannahópnum skorti breidd.

Sky Sports tók fyrir málið í dag og var spurt að því hvers vegna félagið hefði ekki gert meira á leikmannamarkaðnum.

„Manchester United er ekki lengur það stórveldi í fótboltaheiminum sem félagið var eitt sinn," segir Dorsett.

Fréttamaðurinn bendir á að skuldir sem megi rekja til Glazer-fjölskyldunnar, stærstu eigenda félagsins, hafi einnig áhrif á svigrúm United til að fjárfesta. Man Utd hafi því þurft að fylgja skýrri stefnu á leikmannamarkaðnum. Fyrir tveimur sumrum hafi áherslan verið á sóknarleikmenn en í sumar hafi félagið einbeitt sér að miðjunni, enda hafi Casemiro verið á förum.

United eyddi samtals 156 milljónum punda í þrjá miðjumenn í sumar og allir þrír byrjuðu síðasta leik liðsins. Að sögn Dorsett verður næsta skref að styrkja varnarleikinn, en margir stuðningsmenn hafa gagnrýnt að Luke Shaw sé eini reyndi vinstri bakvörðurinn í hópnum. Félagið vilji hins vegar ekki eyða peningum í skammtímalausn þegar stefnt sé að því að fá nýjan vinstri bakvörð næsta sumar.

Dorsett segir að United hafi ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að fá þá Myles Lewis-Skelly eða Lewis Hall, sem eru helstu skotmörk félagsins í stöðu vinstri bakvarðar, síðastliðið sumar.

Stuðningsmenn United eru skiljanlega ósáttir við að sjá keppinauta sína eyða háum fjárhæðum á meðan þeirra eigið félag þarf að sýna aðhald. Dorsett segir þó að félagið muni ekki láta þrýsting frá stuðningsmönnum hafa áhrif á langtímastefnu sína, þótt gremjan yfir stöðunni sé skiljanleg.
Glazer-fjölskyldan er ekki vinsæl á meðal stuðningsmanna félagsins.

Glazer-fjölskyldan er ekki vinsæl á meðal stuðningsmanna félagsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Frá Old Trafford.

Frá Old Trafford.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.