14.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Amad: Þetta er fokking skammarlegt

Amad Diallo

Mynd: EPA

Amad Diallo

Mynd: EPA
Amad Diallo, leikmaður Manchester United, birti dularfull skilaboð á samfélagsmiðlum eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni.

TENGT EFNI
„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“
Það hefur gengið á ýmsu hjá Manchester United að undanförnu og virðist eitthvað hafa brostið innan herbúða félagsins eftir tapið gegn Atlético Madríd á Spáni.
Lisandro Martínez lét stjórnarmenn United heyra það eftir leikinn og gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá United, harðlega fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.
Martínez sagði að leikmennirnir og stjórinn yrðu vissulega að taka ábyrgð á slöku gengi liðsins en að ekki væri hægt að skella allri skuldinni á þá.
Amad lét einnig í sér heyra eftir leikinn þegar hann birti dularfull skilaboð á Snapchat ásamt mynd af sjálfum sér.
„Þetta er fokking skammarlegt. Ég á engin orð,“ skrifaði Amad.
Ekki er ljóst hvað Amad átti við með skilaboðunum. Var hann að vísa til frammistöðunnar gegn Atlético, rauða spjaldsins sem Leny Yoro fékk eða er eitthvað meira að gerast innan herbúða United?
Það er að minnsta kosti ljóst að það er farið að hitna verulega í kolunum hjá United eftir slaka byrjun á tímabilinu.