Það eru tveir U19 landsleikir á dagskrá í dag þar sem strákarnir keppa við Svartfjallaland í fyrstu umferð í undankeppni fyrir Evrópumótið á næsta ári.
Leikurinn hefst klukkan 15:00 og verður bein textalýsing frá honum á vef evrópska fótboltasambandsins, UEFA. Bein textalýsing frá leiknum
Ísland er í þriggja liða riðli ásamt Svartfjallalandi og heimamönnum í liði Georgíu. Efsta sæti riðilsins fer upp í A-deild fyrir næstu umferð undankeppninnar.
Stelpurnar í U19 mæta þá Noregi í vináttulandsleik klukkan 13:00 í Svíþjóð og keppa svo við Svía eftir helgi.
Báðir leikir kvennaliðsins verða sýndir í beinni útsendingu og verða hlekkir á útsendingarnar birtir á miðlum KSÍ.
Undankeppni EM:
15:00 Svartfjallaland U19 - Ísland U19
Æfingaleikur:
13:00 Noregur U19 - Ísland U19



