Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, hefur opnað sig um mjög erfitt tímabil hjá liðinu.
Liverpool var í miklum vandræðum innan vallar en eftir að liðið varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð endaði liðið í fimmta sæti og Arne Slot var rekinn í kjölfarið.
Liverpool var í miklum vandræðum innan vallar en eftir að liðið varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð endaði liðið í fimmta sæti og Arne Slot var rekinn í kjölfarið.
„Ég talaði við Slot, það er aðalatriðið. Hvað fór okkar á milli verður bara okkar á milli. Ég einbeiti mér núna alfarið að HM," sagði Van Dijk.
Þá lést Diogo Jota í bílslysi í sumar sem hafði eðlilega mikil áhrif á liðið. Félagið kvaddi einnig Mohamed Salah og Andy Robertson.
„Þetta var erfiðasta tímabilið á mínum ferli. Það er klárt, sérstaklega andlega. Þetta var stanslaust upp og niður. Við náðum aldrei stöðugleika og komumst ekki á það stig sem við ætluðum," sagði Van Dijk.
„Það hefur margt komið upp á hjá Liverpool á þessu tímabili. Frá því ég fékk þessar hræðilegu fréttir af Jota fram að síðasta leik þar sem við kvöddum Mo Salah og Andy Robertson. Ég sat á grasinu og fylgdist með þeim tveimur sem ég spilaði með í átta ár. Ég hef aldrei upplifað annað eins í öll þessi ár hjá Liverpool."


