06.07.05 - 06:38
Vikash Dhorasoo til PSG (Staðfest)

Frakkinn Vikash Dhorasoo er kominn aftur heim eftir algjörlega misheppnaða dvöl hjá AC Milan á Ítaliu. Hann kom frá Lyon um síðasta sumar en náði aldrei að festa sig í sessi hjá Carlo Ancelotti stjóra Milan og óskaði hann þess að fá að fara.
Dhorasoo er 31 árs gamall og skrifaði undir tveggja ára samning við Parísarliðið. "Þetta var spurning um lífsval fyrir mig, París er mögnuð borg" sagði Dhorasoo sem mun formlega skrifa undir á allra næstu dögum en kaupverðið eru 3 milljónir Evra.
Milan vildu ekki að hann færi en hugur Dhorasoo leitaði heim og því féllust Mílanórisarnir á það. Tveir framherjar eru næstir á kauplista PSG en eftir á þeim lista munu vera Benjani leikmaður Auxerre og Roque Santa Crus leikmaður Bayern Munchen.