06.07.05 - 18:46
Magnús Már Einarsson
Gustafsson í Keflavík (Staðfest)

Keflvíkingar eru að fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Keflvíkingar eru að fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Keflavík hefur fengið Kenneth Gustavsson til liðs við sig frá sænska 2.deildarliðinu IFK Malmö. Gustavsson sem getur leikið á miðjunni eða í vörninni kemur frítt til Keflvíkinga þar sem hann var með klásúlu þess efnis að hann mætti fara frítt til "stærra" liðs en Keflavík er í efstu deild hér á landi og því fékk hann að fara.
Gustavsson hefur spilað ellefu leiki í 2.deildinni í Svíþjóð í sumar og skorað fimm mörk. Gustavsson sem er 22 ára lék með Guðmundi Viðari Mete hjá Malmö en Guðmundur gekk til liðs við Keflavík í síðustu viku.
Keflvíkingar sem eru í þriðja sæti í Landsbankadeildinni hafa einnig fengið Sean Fraser frá Jamaíku til reynslu samkvæmt heimasíðu sinni og verður hann hjá þeim næstu daga.
Keflvíkingar sem eru í þriðja sæti í Landsbankadeildinni hafa einnig fengið Sean Fraser frá Jamaíku til reynslu samkvæmt heimasíðu sinni og verður hann hjá þeim næstu daga.
