06.07.05 - 18:53
Magnús Már Einarsson
Nils-Eric Johansson til Leicester (Staðfest)

Nils-Eric (til vinstri) í baráttunni við Lomana Lua Lua.

Nils-Eric (til vinstri) í baráttunni við Lomana Lua Lua.

Sænski varnarmaðurinn Nils-Eric Johansson hefur gengið til liðs við Jóhannes Karl Guðjónsson og félaga í Leicester City. Johansson sem er 25 ára hefur gert tveggja ára samning við Leicester en hann kemur frítt til liðsins frá Blackburn.
Johansson kom til Blackburn árið 2001 frá Nurnberg á 2,7 milljónir punda en hann getur spilað bæði sem miðvörður og vinstri bakvörður.
Hann sagði: ,,Leicester gerði áhuga sinn ljósan snemma í sumar svo ég kom hingað til að skoða og varð heillaður. Allur staðurinn er byggður fyrir úrvalsdeildina og það er okkar verk að koma félaginu aftur á þann stað þar sem það á heima."