Fotbolti.net
06.07.19 - 19:52
Ívan Guðjón Baldursson

Arnþór Ingi: Ætlaði að hætta í fótbolta

Auglýsing
Arnþór Ingi: Ætlaði að hætta í fótbolta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnþór Ingi Kristinsson var maður leiksins er KR hafði betur gegn ÍBV á Hásteinsvelli fyrr í dag.
Hann skoraði og lagði upp í 1-2 sigri og er KR komið með sjö stiga forystu á toppi Pepsi Max-deildarinnar, þó Blikar eigi leik til góða gegn HK á morgun.

„Ég veit ekki hvort hann hafi verið kominn inn þegar ég var byrjaður að hlaupa í átt að stúkunni til að fagna. Ég bara gerði ráð fyrir því að hann myndi einhvern tímann detta þarna inn í markið," sagði Arnþór Ingi brosandi að leikslokum.

Arnþór Ingi hefur verið öflugur undanfarin misseri en hann hefur glímt við meiðsli og íhugaði að hætta knattspyrnuiðkun.

„Það kom alveg fyrir að ég ætlaði bara að hætta. Það er hellings tími sem fer í þetta og maður er að leggja mikið á sig. Maður ákvað að kýla bara á þetta, taka þetta með trompi og gera þetta almennilega fyrst maður er að leggja þetta á sig á annað borð."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.