Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 06. júlí 2022 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Anthony Gordon er ekki til sölu
Gordon skoraði fjögur og lagði upp þrjú á síðustu leiktíð.
Gordon skoraði fjögur og lagði upp þrjú á síðustu leiktíð.
Mynd: EPA

Everton hefur engan áhuga á því að selja kantmanninn efnilega Anthony Gordon þrátt fyrir áhuga frá Newcastle.


Gordon er 21 árs gamall og vann sér inn sæti í byrjunarliði Everton á síðustu leiktíð er liðið bjargaði sér frá óvæntri fallbaráttu á lokaspretti tímabilsins.

Newcastle er að leita sér að kantmanni og hefur reynt að opna viðræður við Everton um kaup á Gordon en svarið frá þeim bláu er alltaf eins: Anthony Gordon er ekki til sölu. 

Líklegt er að Newcastle geri Moussa Diaby, kantmann Bayer Leverkusen, að sínu helsta skotmarki til að auka breiddina á vellinum og í hópnum.

Tottenham sýndi Gordon einnig áhuga fyrr í sumar en endaði á því að kaupa Richarlison.


Athugasemdir
banner
banner
banner