Orri: Fannst vanta smá greddu inní boxinu
Auglýsing

Orri var ánægður með frammistöðuna en svekktur að ná ekki inn marki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hlýtur að vera svekkjandi að ná ekki að skora í kvöld?
<i>\"Já það var rosalega svekkjandi af því að frammistaðan var virkilega góð hjá stelpunum. Við sköpuðum okkur fullt af færum en það þarf að skora. Það þarf að klára þessi færi. Því miður gekk það ekki í kvöld. En frammistaðan var góð engu að síður,\"</i> sagði Orri Þórðarson, þjálfari FH, eftir markalaust jafntefli við Grindavík í dag.

Hvað hefðuð þið getað gert öðruvísi til að koma boltanum í netið?
\"Ég veit það ekki. Bara þessi litlu atriði. Að kannski tímasetja hlaup betur. Við vorum að fá fullt af fyrirgjöfum. Mér fannst kannski vanta smá greddu inní boxinu. Ætlar sér að fara í boltann og klára þetta. Það vantaði svona herslumuninn.\"
Með jafnteflinu fer FH í 20 stig og þar með slá þær stigametið sitt í efstu deild. Það hlýtur að vera jákvætt.
\"Jújú, það er náttúrulega mjög gott að við erum að ná því. Það er svona varða á þessari leið sem ég tel að FH liðið sé á og við ætlum að gera ennþá betur á næstu árum og næsta ári.\"
\"Þetta er bara fótbolti og ef menn hafa ekki keppnisskap þó svo að það sé ekkert sæti undir eða eitthvað svoleiðis þá eiga menn að finna sér eitthvað annað að gera, allavega annað félag. Því það er metnaður í okkur og við ætlum að gera allt sem við getum til að safna eins mörgum stigum og mögulegt er. Eins í þessum síðustu tveimur leikjum,\" sagði Orri að lokum, aðspurður að því hvernig það yrði að mótivera liðið fyrir síðustu tvo leikina þegar enginn möguleiki er á því að klifra hærra í töflunni.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.