Meistaradeildin: Niko Hansen með tvennu í sigri Víkings


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1-0 Nikolaj Hansen ('48 )
1-1 Kings Kangwa ('51 )
2-1 Nikolaj Hansen ('86 )
Lestu um leikinn
Valdimar Þór Ingimundarson var hársbreidd frá því að koma Víkingum yfir snemma leiks en skaut í tréverkið. Niko Hansen komst í dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks en Ofir Marciano í marki Hapoel varði stórkostlega.
Víkingar brutu ísinn strax í upphafi seinni hálfleiks. Oliver Ekroth skallaði boltann á Niko Hansen sem skoraði af stuttu færi. Gestirnir jöfnuðu stuttu síðar, Daníel Hafsteinsson átti slæma snertingu á boltann við vítateiginn og margir leikmenn Hapoel umkringdu hann. Kings Kangwa fékk boltann og vippaði yfir Aron Snæ Friðriksson í marki Víkinga.
Niv Yehoshua skoraði fyrir gestina þegar tæplega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en sem betur fer fyrir Víkinga var markið dæmt af vegna rangstöðu.
Gylfi Þór Sigurðsson var nálægt því að koma Víkingum yfir þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma en varnarmaður Hapoel bjargaði á síðustu stundu.
Víkingar náðu hins vegar forystunni stuttu síðar þegar Niko Hansen kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Óskari Borgþórssyni. Valdimar var nálægt því að innsigla sigurinn í lokin en skallaði framhjá. Það kom ekki að sök þar sem Víkingur fór með sigur af hólmi.
Seinni leikur liðanna fer fram í Ungverjalandi á miðvikudaginn í næstu viku.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




