Fotbolti.net
06.10.20 - 10:40
Magnús Már Einarsson

Welbeck laus frá Watford

Welbeck laus frá Watford
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Danny Welbeck hefur komist að samkomulagi um starfslok hjá Watford.
Hinn 29 ára gamli Welbeck kom til Watford frá Arsenal í fyrra en hann var áður á mála hjá Manchester United.

Welbeck skoraði þrjú mörk í tuttugu leikjum með Watford þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Welbeck hefur skorað 44 mörk og lagt upp 20 í 224 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Watford ákvað að leyfa Welbeck að fara þar sem hann er með háan launapakka. Welbeck getur því fundið sér nýtt félag þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.