06.10.26 - 15:33
Kári Snorrason
Frakkinn tæpur fyrir stórleikinn á Anfield

Hefur byrjað alla fimm deildarleiki Liverpool á tímabilinu.

Mynd: EPA

Jeremy Jacquet, varnarmaður Liverpool, er meiddur aftan í læri og er óvíst hvort hann verði leikfær þegar liðið tekur á móti Man City á Anfield á sunnudag.
Jacquet var ekki í leikmannahópi Frakklands sem mætti Belgíu í gær. Hann hafði verið í byrjunarliði Frakka í leikjunum tveimur þar áður.

TENGT EFNI
Zidane hrósar Jacquet - „Búinn að segja það fjórum sinnum"
Varnarmaðurinn mun snúa aftur til Liverpool þar sem meiðslin verða metin nánar næstu daga.
Liverpool og Manchester City mætast á sunnudag í einum stærsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Um er að ræða fyrsta leik Man City frá því að félagið var fundið sekt um að hafa brotið á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.