Fotbolti.net
06.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Heimsókn til Eistlands

Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu mæta til leiks í síðasta sinn í landsleikjaglugganum þegar þeir heimsækja Eistland í kvöld.

Lærlingar Arnars Gunnlaugssonar byrjuðu gluggann á afar döpru jafntefli á heimavelli gegn Eistum en skiptu svo um gír og unnu næstu leiki gegn Lúxemborg og Búlgaríu á sannfærandi máta.

Nú er komið að lokaleiknum en bæði eistneska og íslenska landsliðið eru nokkuð löskuð eftir mikið leikjaálag. Því er hægt að búast við talsverðum breytingum á báðum byrjunarliðum fyrir leik kvöldsins.

Lúxemborg og Búlgaría mætast líka í kvöld en Ísland trónir á toppi riðilsins sem stendur, með sjö stig eftir þrjár umferðir. Eistland er í öðru sæti með fimm stig og svo kemur Lúxemborg með þrjú stig.
Arnar gerir ráð fyrir kokhraustum Eistum
TENGT EFNI

Arnar gerir ráð fyrir kokhraustum Eistum

Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
18:45 Lúxemborg - Búlgaría (Stade de Luxembourg)
18:45 Eistland - Ísland (Lilleküla Stadium)
Ísland í dag - Heimsókn til Eistlands
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.