Arnar gerir ráð fyrir kokhraustum Eistum

Arnar Gunnlaugsson segir Eista fulla sjálfstrausts

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson segir Eista fulla sjálfstrausts

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson og Guðlaugur Victor Pálsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Tallinn í dag fyrir leik liðsins gegn Eistlandi á morgun. Þetta er annar leikur liðsins gegn Eistlandi í þessum glugga en fyrri leikurinn fór, eins og frægt er orðið, 1-1 á Laugardalsvelli þar sem Eistarnir pökkuðu allduglega í vörn. Arnar var spurður að því á blaðamannafundinum hvort hann búist við meira af því sama eða að þeir stigi aðeins ofar á völlinn á sínum eigin heimavelli.
„Ég býst við því að þeir verði kokhraustir, komi aðeins á okkur og stigi upp. Þeir eru núna, það sem ég tel vera sterkasta vopn íþróttamannsins, það er sjálfstraust og ‘momentum’. Í þeirra huga eru örugglega frábær úrslit að ná í jafntefli á móti okkur og svo Búlgörum á útivelli og að fylgja því eftir með sigri á heimavelli. Líka bara miðað við hvernig hópurinn þeirra er að tala og fjölmiðlamenn og aðrir að þá líta þeir á sig bara sem jafnoka okkar sem er bara í fínu lagi og ég held að þeir muni stíga á okkur til að byrja með, nýti sér völlinn sem er þungur og erfiður, mun bjóða upp á mistök og skemmtilegheit. Þannig að ég held að þeir hafi enga ástæðu til þess að vera eitthvað hræddir við okkur“
Kári Árnason ræddi það í setti eftir leikinn gegn Búlgaríu á laugardaginn að Eistarnir væru með uppskriftina af því að spila á móti okkur. Ætlar Arnar að koma þeim eitthvað á óvart með upplegginu á morgun?
„Já auðvitað. Mér fannst, þegar ég talaði um eftir leikinn, að þetta hafi ekki verið jafn slæmt eins og við héldum að þá átti ég aðallega við að við komumst í ansi margar stöður þar sem að krossinn var aðeins of hár eða aðeins of lár, aðeins fram hjár mönnum. En stöðurnar voru svo sannarlega til staðar og það eru bara alltaf veikleikar í hverju einasta leikkerfi og leikkerfið þeirra býður upp á skemmtilega möguleika á að reyna að nýta þær opnanir sem munu myndast. Ég held bara, miðað við hvernig völlurinn er núna að þá verður þetta baráttuleikur og þeir með sjálfstraustið í botn og eru að fara að herja á okkur, við þurfum bara að vera massífir og standast það en við þurfum að muna að við erum þar sem við erum. Við erum liðið sem að er á toppnum, við erum liðið sem er töluvert ofar en þeir á listanum þannig við þurfum að mæta með kassann úti. Við fylgdum þessum úrslitum í Reykjavík með tveimur sterkum sigrum, talandi um að Eistar séu með sjálfstraust, þá erum við svo sannarlega þar líka þannig að þetta er aðallega bara að mála leikinn á Laugardalsvelli eins og hann var, hann var ekki alveg nægilega góður en var samt ekki hræðilegur.“
