Fotbolti.net
06.10.26 - 22:34
Brynjar Ingi Erluson

Kiddi Steindórs kveður Breiðablik - „Hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu“

Kristinn Steindórsson

Kristinn Steindórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Steindórsson, leikmaður Breiðabliks, hefur tilkynnt að þetta verði hans síðasta tímabil með félaginu.
Fyrr í kvöld tilkynnti Guðmundur Kristjánsson að hann myndi leggja skóna á hilluna eftir tímabilið en hann hefur leikið með Stjörnunni undanfarin ár.

Nú hefur Kristinn staðfest að þetta verði hans síðasta tímabil með Blikum. Báðir voru í lykilhlutverki þegar Breiðablik varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari ári síðar.

Kristinn fór í atvinnumennsku sama ár og Guðmundur, árið 2012, og gekk til liðs við Halmstad í Svíþjóð þar sem hann lék með Guðjóni Baldvinssyni. Hann var hjá félaginu til ársins 2014 og tók síðan eitt tímabil með Columbus Crew í Bandaríkjunum.

Þaðan fór hann til Sundsvall í Svíþjóð áður en hann sneri aftur til Íslands og samdi við FH. Eftir tvö tímabil í Hafnarfirði kom hann heim í Breiðablik.

Kristinn hefur síðan orðið Íslandsmeistari með Blikum árin 2022 og 2024 og var hluti af fyrsta íslenska karlaliðinu sem komst í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrir nokkrum vikum bætti hann svo öðrum bikarmeistaratitli í safnið þegar Breiðablik vann Aftureldingu 2-1 í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli.

„Kæru Blikar. Það er orðið ljóst að þetta tímabil er mitt síðasta sem leikmaður Breiðabliks. Það eru margar tilfinningar sem brjótast fram en fyrst og fremst stolt. Ég er stoltur af mínum tíma hjá félaginu, stoltur að hafa borið kyndilinn á brjóstinu öll þessi ár og ég er gífurlega stoltur af árangrinum sem náðst hefur. Við höfum skrifað sögu félagsins og sögu íslenskrar knattspyrnu og gert það á okkar forsendum. Ég hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu.
Vonandi næ ég að kveðja sem flest ykkar á þeim tíma sem eftir lifir tímabils. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir mig,“
sagði Kristinn á Instagram.


Kiddi Steindórs kveður Breiðablik - „Hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.