06.10.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon
Það verður slegist um treyjuna hans Messi í kvöld

Messi eldhress á æfingu fyrir leikinn.

Mynd: EPA

Messi eldhress á æfingu fyrir leikinn.

Mynd: EPA
Í kvöld klukkan 23:00 verður flautað til leiks í vináttulandsleik Argentínu og Beníns en um sögufrægan leik verður að ræða. Lionel Messi leikur í síðasta sinn fyrir argentínska landsliðið.
Argentína hitaði upp fyrir leikinn með því að sigra Búrkína Fasó 7-0 í vináttulandsleik og má búast við svipuðum lokatölum í leiknum í kvöld.

Ekki er búist við því að Messi spili allan leikinn heldur verði tekinn af velli í seinni hálfleik svo áhorfendur geti klappað fyrir þessari miklu goðsögn. Löngu er orðið uppselt á Estadio Monumental leikvanginn í Búenos Aíres.
Argentína mun leika í sérhönnuðum treyjum í þessum kveðjuleik Messi og ljóst að treyjan sem hann mun sjálfur klæðast verður mjög verðmæt.
„Það er ótrúlega erfitt að eignast Messi treyju sem hann hefur notað eftir leik því allir vita hversu verðmætar þær eru. Allir leikmenn á vellinum vonast til þess að skipta við hann. Þetta er í fyrsta skipti sem goðsögn hefur hætt með séhannaðri treyju,“ segir Doug Bierton, stofnandi Classic Football Shirts.
Hann setur treyjuna sem Messi klæðist í kvöld í sama flokk og treyjuna sem Diego Maradona klæddist í leiknum fræga gegn Englandi, þar sem hann skoraði með 'hendi guðs'.