Fotbolti.net
06.10.26 - 21:01
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Kane skoraði tvennu og jafnaði leikjametið - Endurkoma hjá Spánverjum

Harry Kane skoraði tvennu er hann jafnaði leikjametið

Harry Kane skoraði tvennu er hann jafnaði leikjametið

Canon

Mynd: EPA

England og Spánn fögnuðu bæði sigri á ný í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Spánverjar sneru taflinu við og unnu 2-1 sigur á Króötum sem sýndu þó ágæt viðbrögð eftir 7-0 skellinn gegn Englendingum.

Ivan Perisic kom Króötum yfir á 17. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir frábæra skyndisókn. Mikel Merino jafnaði á 61. mínútu eftir sendingu frá Dani Olmo og nítján mínútum síðar voru Króatar orðnir manni færri þegar Perisic fékk rautt spjald.

Merino nýtti sér liðsmuninn og skoraði glæsilegt sigurmark á 88. mínútu. Sendingin inn á teiginn var erfið viðureignar en hann tók frábærlega á móti boltanum, lagði hann fyrir sig og hamraði honum upp í vinstra hornið.

Spánverjar eru á toppnum með fullt hús stiga en Króatía í þriðja sæti með þrjú stig.

Harry Kane skoraði tvö mörk þegar England vann 3-0 sigur á Tékkum á Wembley. Þetta var hans 125. landsleikur og jafnaði hann þar með leikjamet Peter Shilton sem hafði staðið í rúma þrjá áratugi.

Kane átti stóran þátt í fyrsta markinu þegar Vladimir Coufal stýrði boltanum í eigið net. Hann skoraði síðan sjálfur á 40. mínútu eftir undirbúning Morgan Rogers og bætti við öðru marki á þeirri 57.

England er í öðru sæti C-riðils með níu stig en Tékkar eru án stiga á botninum.

Í B-deildinni steig Sviss stórt skref að sigri í A-riðli með 3-0 sigri á Norður-Makedóníu. Sviss er með fullt hús eftir fjóra leiki en Slóvenía er í öðru sæti með sjö stig eftir 2-1 sigur á Skotum.

A-deild:

Króatía 1 - 2 Spánn
1-0 Ivan Perisic ('17 )
1-1 Mikel Merino ('61 )
1-2 Mikel Merino ('88 )
Rautt spjald: Ivan Perisic, Króatía ('80)

England 3 - 0 Tékkland
1-0 Vladimir Coufal ('27 , sjálfsmark)
2-0 Harry Kane ('40 )
3-0 Harry Kane ('57 )

B-deild:

Skotland 1 - 2 Slóvenía
1-0 Ryan Christie ('31 )
1-1 Aljosa Matko ('56 )
1-2 Danijel Sturm ('71 )

Sviss 3 - 0 Norður-Makedónía
1-0 Fabian Rieder ('43 )
2-0 Johan Manzambi ('74 )
3-0 Dan Ndoye ('81 )

C-deild:

Albanía 2 - 1 San Marínó
1-0 Kristjan Asllani ('11 )
1-1 Lorenzo Lazzari ('66 )
2-1 Kristjan Asllani ('90 , víti)

Hvíta-Rússland 1 - 0 Finnland
1-0 Artem Shumanskiy ('1 )
1-0 Zakhar Volkov ('15 , Misnotað víti)

Lúxemborg 0 - 2 Búlgaría
0-1 Kristiyan Balov ('19 )
0-2 Atanas Iliev ('34 )

Moldóva 0 - 4 Slóvakía
0-1 David Strelec ('8 )
0-2 Tomas Suslov ('44 )
0-3 David Hancko ('60 )
0-4 Lukas Haraslin ('75 )
Merino sneri við taflinu fyrir Spánverja

Merino sneri við taflinu fyrir Spánverja

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.