Fotbolti.net
06.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ómar stígur til hliðar og Keflvíkingar leita til grannanna

Ómar stígur til hliðar og Keflvíkingar leita til grannanna
Canon

Mynd: Keflavík

Jaizkibel Roa Argote er tekinn við sem markmannsþjálfari Keflavíkur, hann kemur til félagsins frá Njarðvíkingum. Ómar Jóhannsson mun stíga til hliðar en verður yfirþjálfari markmanna í yngri flokkum félagsins.
Tilkynning Keflavíkur
Jaizkibel Roa Argote hefur tekið við starfi markmannsþjálfara meistaraflokks karla hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur.

Jaizkibel kemur til Keflavíkur frá nágrönnum okkar í Njarðvík, þar sem hann hefur starfað sem markmannsþjálfari undanfarin þrjú ár.
Hann tekur við starfinu af Ómari Jóhannssyni, sem stígur til hliðar úr þjálfarateymi meistaraflokks karla en mun áfram gegna mikilvægu hlutverki innan félagsins sem yfirþjálfari markmanna í yngri flokkum Keflavíkur.

Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Ómari fyrir hans störf með meistaraflokki og fagnar því að njóta áfram krafta hans í uppbyggingu ungra markmanna félagsins.

Um leið bjóðum við Jaizkibel hjartanlega velkominn til Keflavíkur og hlökkum til samstarfsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.