Fotbolti.net
06.11.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

England um helgina - Aston Villa heimsækir Man Utd

England um helgina - Aston Villa heimsækir Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Tíunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina. Um er að ræða síðustu umferðina fyrir landsleikjahlé.

Þetta hefst í kvöld með leik Everton og Coventry. Leeds fær Tottenham í heimsókn í hádeginu á morgun.

Arsenal fær Hull í heimsókn og Man City heimsækir Nottingham Forest. Arsenal gæti farið inn í landsleikjahléið með allt að sex stiga forystu á toppnum.

Brighton mætir Brentford en ef Man City tapar getur Brighton komist upp í 2. sæti. Liverpool heimsækir Crystal Palace en Pierre Sage, stjóri Palace, er undir mikilli pressu þar sem liðið er í fallsæti.

Chelsea heimsækir botnlið Sunderland og þá mætast Man Utd og Aston Villa í síðasta leik umferðarinnar. Pressan er orðin gríðarleg á Michael Carrick en United tókst þó að binda enda á níu leikja hrinu án sigurs með dramatískum sigri á Roma í vikunni.
föstudagur 6. nóvember
20:00 Everton - Coventry

laugardagur 7. nóvember
12:30 Leeds - Tottenham
15:00 Arsenal - Hull City
15:00 Fulham - Newcastle
17:30 Nott. Forest - Man City

sunnudagur 8. nóvember
14:00 Brighton - Brentford
14:00 Crystal Palace - Liverpool
14:00 Ipswich Town - Bournemouth
14:00 Sunderland - Chelsea
16:30 Man Utd - Aston Villa

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.