Fotbolti.net
05.11.26 - 23:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rosenior segir að grín á samfélagsmiðlum hafi orðið sér að falli

Rosenior segir að grín á samfélagsmiðlum hafi orðið sér að falli
Canon

Mynd: EPA

Liam Rosenior, fyrrum stjóri Chelsea, tjáði sig við franska miðilinn So Foot um brottreksturinn frá enska félaginu.

Rosenior var 107 daga í starfi eftir að hafa verið ráðinn í stað Enzo Maresca. Þetta byrjaði vel með sex sigrum í fyrstu sjö leikjunum en liðið tapaði sjö af síðustu átta.
Rosenior segir að grínistar á samfélagsmiðlum hafi haft meiri áhrif á brottreksturinn en gengi liðsins.

„Öll félög hefðu verið ánægð með þessa byrjun en ekki Chelsea. Maður nær í góð úrslit og er í sviðsljósinu. Svo eru snjóboltaáhrif á samfélagsmiðlum. Þeir gerðu grín að leiðbeiningunum sem ég gaf Garnacho á blaði þegar við höfðum misst mann af velli gegn PSG. Fötin sem ég klæddist urðu að gríni, og líka hvernig ég talaði. Ég er enginn brandari," sagði Rosenior.

Atvikið í PSG leiknum sem hann vitnaði í var þegar hann lét Alejandro Garnacho fá blað með taktískum breytingum þegar skammt var til loka leiksins og staðan var 8-2 fyrir PSG í einvíginu.

Rosenior er stjóri Paris FC í dag en liðið er í 4. sæti frönsku deildarinnar þremur stigum á eftir grönnum sínum í PSG sem er á toppnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.