Björn Bergmann Sigurðarson gæti verið á förum frá rússneska félaginu Rostov samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Áhugi er á Birni víðsvegar í Evrópu og hann gæti fært sig um set í þessum mánuði.
Áhugi er á Birni víðsvegar í Evrópu og hann gæti fært sig um set í þessum mánuði.
Hinn 28 ára gamli Björn Bergmann hefur skorað tvö mörk í sex leikjum með Rostov á tímabilinu en hann er á sínu þriðja ári með liðinu.
Björn Bergmann hefur áður spilað með Lilleström og Molde í Noregi, Wolves á Englandi og FC Kaupmannahöfn í Danmörku.
Ragnar Sigurðsson samdi um starfslok hjá Rostov á dögunum og Björn Bergmann gæti nú einnig yfirgefið félagið.
Athugasemdir