Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. janúar 2020 22:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ashley Young sagður á leið til Inter
Young búinn að segja já? - Conte hefur áhuga
Mynd: Getty Images
Fyrr í kvöld var sagt frá því að þrír leikmenn Manchester United væru mögulega á leið í ítölsku Seríu A.

Sjá einnig:
Young, Chong og Lingard á leið til Ítalíu?

Þróun hefur orðið á stöðu Ashley Young en Sky Italia vill meina að Young hafi samþykkt það nú þegar að ganga í raðir Inter Milan.

Þá greinir Fabrizio Romano, fréttaritari Sky Italia, einnig frá því að Antonio Conte, stjóri Inter, hafi mikinn áhuga á Young og vilji fá hann til Inter.

Það yrðu þá þriðju viðskipti Inter á rúmu hálfu ári því bæði Romelu Lukaku og Alexis Sanchez gengu í raðir Inter síðasta sumar, Alexis Sanchez var þó einungis lánaður til ítalska félagsins en Lukaku var keyptur.
Athugasemdir
banner
banner