07.01.21 - 09:18
Magnús Már Einarsson
Ajax reynir að kaupa Haller á mun lægra verði


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hollenska félagið Ajax er að reyna að kaupa framherjann Sebastien Haller frá West Ham.
West Ham keypti Haller frá Frankfurt í Þýskalandi á 45 milljónir punda fyrir einu og hálfu ári síðan.
Tilboð Ajax er innan við helmingur af þeirri upphæð.
West Ham keypti Haller frá Frankfurt í Þýskalandi á 45 milljónir punda fyrir einu og hálfu ári síðan.
Tilboð Ajax er innan við helmingur af þeirri upphæð.
Haller hefur einungis skorað tíu mörk í 48 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði eitt af mörkum tímabilsins með hjólahestaspyrnu gegn Crystal Palace á dögunum.
Samkvæmt frétt Sky gæti West Ham beðið með að selja Haller þar til í sumar þar sem auðveldara verður fyrir Hamrana að fylla skarð hans þá.
Samkvæmt frétt Sky gæti West Ham beðið með að selja Haller þar til í sumar þar sem auðveldara verður fyrir Hamrana að fylla skarð hans þá.
