15.10.26 - 12:21
Kári Snorrason
Ánægður með ráðninguna - „Það er fokking orka í Garðabæ og það þarf að kveikja á henni“

Snýr aftur í Garðabæinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni er ánægður með ráðninguna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann Íslandsmeistaratitilinn 2014 og bikarmeistaratitilinn 2018 með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gengi Stjörnunnar hefur verið mikil vonbrigði í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snýr aftur í Garðabæinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tilkynnti á þriðjudagskvöld um ráðningu á Rúnari Páli Sigmundssyni. Hann snýr aftur í Garðabæinn hafandi stýrt Gróttu við góðan árangur undanfarin tvö ár og Fylki þar áður.
Rúnar Páll er hátt skrifaður hjá Stjörnunni en hann gerði félagið að Íslandsmeisturum 2014 og bikarmeisturum fjórum árum síðar. Hann mun taka formlega við störfum hjá Stjörnunni eftir tímabil.
Fótbolti.net ræddi við Þorkel Mána Pétursson sem er einn harðasti stuðningsmaður Stjörnunnar og spurði hann út í ráðninguna.

TENGT EFNI
Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)
Liðin hans Rúnars aldrei andlaus
„Ég er gríðarlega ánægður með þessa ráðningu. Það þurfti að koma Garðabæ inn aftur í Stjörnuna og ég held það sé engin betri í það. Stjörnuliðin hans Rúnars hafa aldrei verið andlaus,“ segir Máni.
Aðspurður um hvort aðra kosti í stöðuna segir hann annars hafa verið spenntur fyrir Davíð Smára Lamude (Njarðvík) og Magnús Már Einarsson (Afturelding).
Einföld krafa
Hver eru stærstu verkefnin sem Rúnar á fyrir höndum sér?
„Rúnar þarf að ná upp andanum og sækja gildin. Rúnar Páll tekur það mjög persónulega að tapa leikjum með Stjörnunni og ég veit að hann mun koma því hugarfari aftur inní okkar lið,“ segir Máni og er hann bjartsýnn fyrir framhaldinu.
„Ég hef þá einföldu kröfu að Stjarnan sé besta félag á Íslandi. Það þýðir ekki endilega bara einhverjir bikarar. Það þýðir að reksturinn sé arðbær, við séum að framleiða leikmenn og að allir séu velkomnir.
Stjarnan félagið allt þarf að fara í innri naflaskoðun með þetta. Formaður félagsins er einhver alheitasti Stjörnumaður sem ég veit um og ég hef fulla trú á að hann og hans fólk nái að sameina félagið. Það er fokking orka í Garðabæ og það þarf að kveikja á henni,“ segir Máni að lokum.