15.10.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Southgate missti neistann og horfir varla á fótbolta

Gareth Southgate.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Southgate.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gareth Southgate nánast útilokar að taka við liði í ensku úrvalsdeildinni og viðurkennir að hafa misst neistann eftir að hafa þjálfað enska landsliðið.
Southgate hætti sem landlsiðsþjálfari eftir tapið gegn Spáni í úrslitaleik EM 2024.
Hann hefur ekki farið á leik síðan hann horfði á uppeldisfélag sitt, Crystal Palace, sigra Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins á síðasta ári.
„Ég sé ekki fyrir mér að ég taki við félagsliði. Ég var hættur að njóta undir lokin með Englandi, sigranir halda manni gangandi en í lokin naut ég þeirra ekki nema í nokkrar mínútur," segir Soutghgate.
„Ég fór á úrslitaleik FA-bikarsins til að sjá liðið mitt, Crystal Palace, vinna sinn fyrsta bikar. Ég hef ekki farið á fótboltavöll síðan. Svo löngun mín til að taka þátt í fótbolta hefur breyst."
Southgate segist hafa notið lífsins fyrir utan fótboltann.
„Ég hef hitt stjórnmálamenn, ég hef hitt fólk í fjölmiðlageiranum, ég hef lært um forystuhlutverk og leiðtogastjórnun á alls kyns sviðum. Ég hef ferðast um heiminn og lært hluti. Ég hef bara notið þess að vera í öðru hlutverki í lífinu," segir Southgate í viðtali við hlaðvarpsstjórnandann Amol Rajan.