Fotbolti.net
07.01.21 - 22:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arsenal óttast að Balogun fari frítt - Liverpool hefur áhuga

Balogun skorar

Balogun skorar

Canon

Mynd: Getty Images

Folarin Balogun er mikils metinn hjá Arsenal en sóknarmaðurinn ungi kom vel inn í liðið í Evrópudeildinni fyrir áramót.

Balogun er þó aftarlega í goggunarröðinni hjá Mikel Arteta en Eddie Nketiah, Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette eru allir á undan Balogun.
Samningur Balogun rennur út í sumar og hefur hann ekki viljað skrifa undir nýjan samning til þessa. Balogun er nítján ára og Arteta vill halda honum.

Arteta virtist skjóta á umboðsmann Balogun þegar hann var spurður út í stöðu mála. „Það þarf þrjá til að semja. Félagið vill það, stjórinn vill það og leikmaðurinn vill vera áfram. Ég er ekki viss með umboðsmanninn. Ég er ekki að segja að hann sé að koma í veg fyrir neitt en við þurfum að ná saman við hann, verðum að ná saman við hann og leikmanninn."

Sportsmail greinir frá því að úrvalsdeildarfélög hafi áhuga. Þar á meðal eru Liverpool, Southampton og Brighton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.