banner
   lau 07. janúar 2023 08:05
Fótbolti.net
Staðan í Keflavík og ótímabær spá fyrir Bestu á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net byrjar upphitun sína fyrir Bestu deildina 2023 af alvöru á X977 í dag! Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14.

Sigurður Garðarsson, formaður Keflavíkur, er gestur þáttarins. Mikið hefur verið talað um fjárhagsörðugleika hjá félaginu og Keflvíkingar hafa misst marga burðarása úr leikmannahópi sínum.

Sigurður verður spurður út í stöðu mála hjá Keflvíkingum, sem áttu gott tímabil í Bestu deildinni í fyrra og urðu efstir í neðri hlutanum.

Þá verður fyrsta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina gerð opinber og farið yfir leikmannabreytingarnar sem hafa verið hjá liðunum í vetur.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner