Sjónvarpið: Á að færa íslenska félagaskiptagluggann?
Auglýsing

Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, kallar eftir því að félagaskiptaglugginn á Íslandi opni fyrr á árinu. Félagaskiptaglugginn opnar ekki fyrr en 21. febrúar og þá fá leikmenn sem eru að koma erlendis frá leikheimild.
Undanfarin ár hafa leikmenn sem eru að koma að utan misst af Reykjavíkurmótinu og fyrsta leik í Lengjubikar þar sem glugginn er lokaður. Í Fótbolta.net mótinu hafa allir leikmenn hins vegar leyfi til að spila. Glugginn á Íslandi er opinn 21. febrúar til 15. maí en Sigurbjörn vill færa þessa dagsetningu.

„Af hverju er glugginn öðruvísi í Svíþjóð og Noregi? Glugginn þar byrjar í byrjun janúar og er fram til 31. mars. Ég get ekki skilið af hverju glugginn hérna er ekki opinn frá 1. janúar líka?\" sagði Sigurbjörn í sjónvarpsþættinum Fótbolti.net.
Reglur FIFA koma í veg fyrir að glugginn geti verið opinn allan veturinn en Sigurbjörn vill færa hann fyrr og að sama skapi yrði hann þá líka að loka fyrr. Danski miðjumaðurinn Nicolaj Køhlert samdi við Val í vetur. Hann æfir á fullu með liðinu þessa dagana en þarf að horfa á leikina í Reykjavíkurmótinu úr stúkunni.
„Ég væri til í að geta notað leikmennina strax í byrjun janúar. Hann fær ekkert að spila fyrr en 20. febrúar og þá er hann búinn að vera hér í einn og hálfan mánuð. Ég veit ekki af hverju þetta er svona,\" sagði Sigurbjörn.
Hér að ofan má sjá umræðu úr sjónvarpsþætti Fótbolta.net þar sem rætt er um félagaskiptagluggana erlendis og á Íslandi.
Fleiri brot úr sjónvarpsþætti vikunnar
Sjónvarpið: „Hélt að Lars væri að fara í fyrirlestra í Harvard\"
Sjónvarpið: „Eins og ofboðslega ljótur hjónaskilnaður\"
Sjónvarpið: Hver er ástæðan fyrir hruni Liverpool?