Fotbolti.net
07.02.22 - 19:50
Victor Pálsson

Höskuldur: Hækkar rána að mæta svona sterkum andstæðingum

Auglýsing
Höskuldur: Hækkar rána að mæta svona sterkum andstæðingum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, spilaði með liðinu í gær í ótrúlegum leik við Midtjylland í Atlantic Cup mótinu á Spáni.
Blikar voru að spila við mjög sterkt danskt lið og lentu 3-0 undir í hálfleik þar sem útlitið var ekki bjart.

Íslenska liðið sýndi þó frábæran karakter í þeim seinni og kom til baka til að jafna metin 3-3 og vann svo að lokum í vítakeppni.

Höskuldur ræddi við BlikarTV um þetta æfingamót á Spáni og fór einnig yfir andstæðing gærdagsins.

„Menn eru bara vel stemmdir, þetta var skemmtilegur leikur þannig í dag er bara að hrista úr sér mjólkursýruna og njóta sólarinnar og safna kröftum fyrir næsta leik," sagði Höskuldur.

„Við lendum á smá vegg í fyrri hálfleik, þeir eru með hörkugott lið og ef maður bauð þeim upp á einhverjar glufur þá nýttu þeir sér það heldur betur. Þeir voru góðir að refsa og bara hörkulið, þetta var helvítis naut sem við vorum að díla við þarna."

„Þeir eru með einhverja fjóra danska landsliðsmenn og tvo Brassa sem eiga einhverja 30 plús leiki saman fyrir brasilíska landsliðið. Menn sem eru fengnir á mikinn pening og þetta er proper atvinnumannalið."

Það er stutt síðan Blikar spiluðu við varalið Brentford í sama móti og tók það leikmenn kannski smá tíma að komast af stað í þessum leik.

„Við spiluðum fyrir þrem dögum síðan fyrir þennan leik og mikið á sama liði á meðan þeir eru með held ég 34 leikmenn með sér og þetta voru allt ferskar lappir sem við vorum að mæta þarna. Það tók kannski aðeins fyrri hálfleikinn að hrista mjólkursýruna frá Brentford leiknum úr sér en svo sýndum við hvað í okkur býr í seinni hálfleik."

„Þeir verja hann ekki þarna! Það var fínt að fá vító, það er góður undirbúningur fyrir eitthvað sem gæti mögulega gerst í bikar eða Evrópukeppni. Það er gott að hafa farið í vítakeppni og skorað fimm af fimm og unnið sterkan andstæðing. Það fer í reynslubankann."

Ferðin hefur heppnast vel hjá Blikum hingað til og segir Höskuldur að það geri mikið fyrir hópinn að fá að bera sig saman við svo sterka andstæðinga.

„Það er mikil samþjöppun sem svona ferð gefur hópnum. Það er slatti af nýjum leikmönnum og þetta tengir menn saman. Svo er þetta drullu fín æfing að bera okkur saman við svona sterk lið. Eins og kannski sást um mitt síðasta sumar þegar við spilum þessa Evrópuleiki, það gaf okkur svakalega inn í Íslandsmótið að máta sig við svona sterka andstæðinga. Það hækkar rána hjá okkur, bæði Brentford leikurinn og sérstaklega Midtjylland leikurinn í gær, það minnti mann á leikinn við Racing í Lúxemborg. Að fá svona comeback og draga fram karakterinn í liðinu, það hækkar rána."
Þeir dönsku eru með virkilega gott lið.

Þeir dönsku eru með virkilega gott lið.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.