Lið vikunnar í enska - Sakho í úrvalsliðinu

Markvörður: Artur Boruc (Bournemouth) - Af öllum mönnum... Pólverjinn var frábær í 1-1 jafntefli gegn Man Utd. Varði víti frá Zlatan.

Mynd: Getty Images

Hægri bakvörður: Nathaniel Clyne (Liverpool) - Stóð sig afar vel gegn Danny Welbeck og Nacho Monreal.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Mamadou Sakho (Crystal Palace) - Var úti í kuldanum hjá Liverpool en hann hefur styrkt vörn Palace verulega.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Joel Matip (Liverpool) - Geislaði af sjálfstrausti í sigrinum gegn Arsenal.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörður: Aleksandar Kolarov (Man City) - Lék sem miðvörður og átti frábæran leik.

Mynd: Getty Images

Hægri kantur: Sadio Mane (Liverpool) - Skoraði mark og skapaði stoðsendingu gegn Arsenal.

Mynd: Getty Images

Miðja: Dele Alli (Tottenham) - Skoraði og átti stoðsendingu gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Miðja: Luka Milivojevic (Crystal Palace) - Önnur frábær frammistaða Serbans.

Mynd: Getty Images

Vinstri kantur: Eden Hazard (Chelsea) - Gaf West Ham ekki möguleika!

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Jamie Vardy (Leicester) - Hafði mikil áhrif gegn Hull þó hann hafi ekki skorað.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Harry Kane (Tottenham) - Skoraði tvö mörk gegn Everton.

Mynd: Getty Images




