Fotbolti.net
07.04.26 - 16:38
Kári Snorrason

Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik

Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, fékk óvænta kveðju frá dóttur sinni í miðjum leik er KR lagði Val af velli í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gærdag.
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
Dóttirin sá sér leik á borði er Aron var að sækja bolta sem hafði farið út fyrir hliðarlínu og greip um pabba sinn og knúsaði hann. Ef marka má myndirnar höfðu áhorfendur í stúku gaman að kveðjunni og sömuleiðis Aron sem tók utan um dóttur sína.

Til þess má geta að kona Arons og móðir stelpunnar, Harpa Rut Ingólfsdóttir, er á myndinni neðst til vinstri og virðist sem svo að hún sé að kalla á dótturina að koma til baka.

Leikar enduðu 4-2 fyrir KR og fór Aron sjálfur á kostum í leiknum þar sem hann skoraði tvö mörk og var valinn maður leiksins.

Hafliði Breiðfjörð var á vellinum og fangaði myndir af atvikinu skemmtilega sem má sjá hér fyrir neðan.
Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myndir: Heilsaði upp á pabba sinn í miðjum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.