07.05.17 - 22:08
Ármann Örn Guðbjörnsson
Pape Mamadou Faye: Mikill léttir að vera kominn á blað
Auglýsing

Pape opnaði markareikning sinn árið 2017 í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pape Mamadou Faye gerði mark Víkinga þegar þeir töpuðu gegn KR á heimavelli í annari umferð Pepsi deildar karla. Í fyrrasumar gerði Pape einungis tvö deildarmörk í 20 leikjum en hann er kominn á blað strax núna í annari umferð.
Pape var skiljanlega svekktur að hafa tapað hér í dag en hann gat verið ánægður með eigin frammistöðu.
„Við náðum bara ekki að halda einbeitingunni allan leikinn og þetta er bara glatað. Við ætluðum okkur að taka stig en því miður náðum við ekki að halda einbeitingunni og það er ekki hægt að missa einbeitingu á móti liði eins og KR,\" sagði Pape eftir leik.
„Ég er mjög sáttur með markið mitt og það erfiðasta sem framherji gengur í gegnum er að skora fyrsta markið. En aftur á móti fengum við ekkert úr þessum leik þannig það er svekkjandi.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.