23.07.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir leikmenn sem stóðu upp úr hjá Spáni

Rodri.

Mynd: EPA

Hinn 19 ára gamli Pau Cubarsí.

Mynd: EPA

Rodri.

Mynd: EPA
Spánn varð á dögunum heimsmeistari eftir sigur á Argentínu í úrslitaleiknum.
Fótbolti.net ræddi við tvo Spánverja sem hafa sterkar tengingar við íslenskan fótbolta um heimsmeistaratitilinn; Gonzalo Zamorano, sem lék hér á landi með Hugin, Víkingi Ólafsvík, ÍA, ÍBV og Selfossi á árunum 2017 til 2024, og Borja Martín, nýráðinn þjálfara Völsungs á Húsavík.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 22. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Þeir nefndu tvo leikmenn sem stóðu upp úr hjá spænska liðinu á mótinu.
„Pau Cubarsí, klárlega," sagði Gonzi. „Ásamt Rodri. Við megum ekki gleyma því að hann er aðeins 19 ára gamall. Enginn í sögu fótboltans hefur spilað í þessari stöðu á jafn háu stigi á þessum aldri."
Borja telur hins vegar að Rodri hafi verið sá leikmaður sem hafi haldið öllu kerfinu gangandi.
„Frá taktísku sjónarhorni var Rodri burðarás liðsins. Í nútímafótbolta stjórnar varnarsinnaði miðjumaðurinn öllu rými og öllum takti leiksins. Rodri er kennslubók í því hvernig á að skanna umhverfið 360 gráður, hvernig á að staðsetja líkamann rétt og hvernig á að finna réttu stöðurnar á miðsvæðinu. Hann stjórnar uppspili liðsins, finnur sendingarnar í gegnum línurnar með ótrúlegum hraða í hugsun og fylgir þeirri reglu að taka á móti boltanum með fjærfætinum og spila honum strax áfram með nærfætinum. Þannig sparar hann dýrmætan tíma sem flýtir öllum sóknarleiknum. Hann er þjálfarinn inni á vellinum og lætur allt kerfið virka," segir þjálfari Völsungs.

TENGT EFNI
Spænska uppskriftin að heimsmeistaratitlinum

Hinn 19 ára gamli Pau Cubarsí.

Mynd: EPA