Fotbolti.net
23.07.26 - 14:59
Kári Snorrason

Ekkert íslensku liðanna talið sigurstranglegra

Zrinjski Mostar heimsækir Val á Hlíðarenda.

Zrinjski Mostar heimsækir Val á Hlíðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan, Valur og Vestri verða öll í eldlínunni síðar í dag er þau mæta til leiks í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Vestri heimsækir RFS í Lettlandi klukkan 16:30 og Stjarnan tekur á móti finnska liðinu Ilves á Samsung-vellinum klukkan 19:00.

Stundarfjórðungi síðar hefst leikur Vals og Zrinjski Mostar, sem hefur tvívegis mætt Breiðabliki í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Veðbankinn Epicbet hefur þó takmarkaða trú á íslensku liðunum þremur en ekkert þeirra er talið sigurstranglegra, þó svo að Stjarnan og Valur eiga heimaleiki.

Epicbet hefur litla sem enga trú á Vestra og eru heilir 27 í stuðul á íslenskum sigri í Lettlandi. Valur er með 2.86 í stuðul gegn Mostar á Hlíðarenda í kvöld en 2.32 er í stuðul á gestina.

Mesta trú veðbankans er á Stjörnusigri en 2.54 er í stuðul á Garðbæinga og 2.33 er í stuðul á þá finnsku.

2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar:
16:30 Rigas FS - Vestri
19:00 Stjarnan - Ilves
19:15 Valur - Zrinjski
Stjarnan mætir finnsku meisturunum.

Stjarnan mætir finnsku meisturunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestramenn í Lettlandi.

Vestramenn í Lettlandi.

Canon

Mynd: Vestri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.