Fotbolti.net
07.05.22 - 22:32
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Barcelona með öruggt sæti í Meistaradeild

Ansu Fati gat fagnað marki sínu en hann er að stíga upp úr erfiðum meiðslum

Ansu Fati gat fagnað marki sínu en hann er að stíga upp úr erfiðum meiðslum

Canon

Mynd: EPA

Betis 1 - 2 Barcelona
0-1 Ansu Fati ('76 )
1-1 Marc Bartra ('79 )
1-2 Jordi Alba ('90 )
Barcelona mun spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en liðið vann Real Betis, 2-1, er liðin mættust í spænsku deildinni í kvöld.

Mörkin létu bíða eftir sér í Seville-borg. Það var ekki fyrr en á 76. mínútu sem Ansu Fati gerði fyrsta mark leiksins, stuttu eftir að hann kom inná sem varamaður.

Marc Bartra, fyrrum leikmaður Barcelona, jafnaði metin fyrir Betis þremur mínútum síðar áður en Jordi Alba skoraði sigurmarkið fyrir gestina undir lok leiks.

Sigurinn þýðir að Barcelona er búið að tryggja sæti sitt í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð en liðið er í 2. sæti með 69 stig, ellefu stigum meira en Betis sem er í 5. sætinu þegar þrír leikir eru eftir.

Staðan var ekki góð þegar Ronald Koeman var rekinn frá félaginu í lok október. Xavi tók við í byrjun nóvember og náði að færa liðið hægt og rólega upp töfluna.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.