Fotbolti.net
03.11.26 - 12:36
Elvar Geir Magnússon

Ísland dróst í riðil með Danmörku og Ítalíu í Þjóðadeildinni

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands.

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Dregið var í Þjóðadeild kvenna í dag en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss. Ísland spilar í A-deild og var í þriðja styrkleikaflokki í drættinum.

Ísland er í riðli með Danmörku, Ítalíu og Wales.
Deildarkeppnin fer fram á tímabilinu febrúar til júní 2027. Sigurliðin í riðlunum fjórum í A-deild fera í úrslitakeppni sem verður spiluð seinni hluta ársins.

Liðin fjögur sem enda í neðstu sætum falla niður í B-deildina.

Riðill 1:
Spánn
Noregur
Írland
Sviss

Riðill 2:
Frakkland
England
Austurríki
Portúgal

Riðill 3:
Danmörk
Ítalía
Ísland
Wales

Riðill 4:
Þýskaland
Holland
Svíþjóð
Skotland
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.