Fotbolti.net
03.11.26 - 10:50
Elvar Geir Magnússon

Asíubikarnum frestað - Hefur mikil áhrif á ensku úrvalsdeildina

Zion Suzuki, markvörður Aston Villa.

Zion Suzuki, markvörður Aston Villa.

Canon

Mynd: EPA

Búið er að fresta Asíubikarnum sem fram átti að fara 7. janúar til 5. febrúar 2027. Keppnin, sem á að fara fram í Sádi-Arabíu, hefur verið færð og mun fara fram 23. desember 2027 til 21. janúar 2028.

Í yfirlýsingu frá asíska fótboltasambandinu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna í ljósi núverandi aðstæðna, meðal annars vegna flækjustiga varðandi ferðalög.

Ástandið á svæðinu er eldfimt, átök staðið yfir og árásir verið gerðar á Sádi-Arabíu.
Ákvörðunin um að fresta Asíumótinu þýðir að fjöldi leikmanna í ensku úrvalsdeildinni missa ekki af hluta af yfirstandandi tímabili.

Meðal leikmanna sem hefðu farið á mótið eru Japaninn Zion Suzuki hjá Aston Villa og Daizen Maeda hjá Ipswich Town.

Ao Tanaka hjá Leeds United, Takehiro Tomiyasu og Daichi Kamada hjá Crystal Palace, Kaoru Mitoma hjá Brighton og Hidemasa Morita hjá Hull City spila einnig fyrir Japan. Abdukodir Khusanov, varnarmaður Manchester City, spilar fyrir Úsbekistan, og Lucas Herrington, varnarmaður Hull City, fyrir Ástralíu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.