Fotbolti.net
03.11.26 - 10:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Kristinn sá sjötti sem Haukar krækja í (Staðfest)

Jón Kristinn sá sjötti sem Haukar krækja í (Staðfest)
Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Haukar hafa gert þriggja ára samning við markvörðinn Jón Kristin Elíasson sem kemur frá Víkingi Ólafsvík.

Eyjamaðurinn jón Kristinn hefur staðið vaktina á milli stanganna í Ólafsvík undanfarin tvö tímabil. Hann æfði með Breiðabliki í haust en semur nú við Hauka.

Tímabilið 2024 lék hann sjö leiki í Lengjudeildinni með ÍBV og hafði áður spilað ellefu leiki í Bestu deidinni fyrir uppeldisfélagið.

Jón Kristinn er sjötti leikmaðurinn sem Haukar, sem unnu 2. deild í sumar, hafa fengið í sínar raðir og er Jón Kristinn annar Eyjamaðurinn því Eyþór Orri Ómarsson samdi við félagið í síðasta mánuði.

Sveinn Óli Guðnason spilaði flesta leiki í marki Hauka á tímabilinu en þeir Franz Sigurjónsson og Axel Ýmir Jóhannsson fengu einnig leiki.
Komnir
Eyþór Orri Ómarsson frá Þrótti V.
Árni Steinn Sigursteinsson frá Fjölni
Daníel Ingvar Ingvarsson frá Fjölni
Pere Belmonte frá Kormáki/Hvöt
Federico Russo frá Kormáki/Hvöt
Jón Kristinn Elíasson frá Víkingi Ólafsvík
Óliver Þorkelsson frá Hamri (var á láni)

Farnir
Gabríel Aron Sævarsson í Breiðablik (var á láni)

Samningslausir
Alexander Aron Tómasson
Heiðar Máni Hermannsson
Pablo Punyed
Axel Ýmir Jóhannsson
Jón Kristinn sá sjötti sem Haukar krækja í (Staðfest)
Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.