Fotbolti.net
03.11.26 - 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Halli Björns mun líka starfa á skrifstofu Vals

Halli Björns mun líka starfa á skrifstofu Vals
Canon

Mynd: Valur

Eins og greint hefur verið frá þá er Haraldur Björnsson nýr markmannsþjálfari meistaraflokks karla hjá Val en hann kemur heim á Hlíðarenda eftir að hafa verið markmannsþjálfari Breiðabliks síðustu ár.

Valur greinir frá því í dag að Halli, eins og hann er oftast kallaður, verði einnig rekstarstjóri fótboltadeildar hjá félaginu.
Úr tilkynningu Vals
Haraldur er uppalinn Valsari og kemur nú heim á Hlíðarenda eftir 15 ár sem atvinnumaður erlendis og í Stjörnunni í Garðabæ auk þess sem hann hefur gegnt stöðu markmannsþjálfara hjá Breiðablik síðustu þrjú ár.

Sem rekstrarstjóri mun Haraldur halda utan um daglegan rekstur deildarinnar í samstarfi við aðra, ásamt samskiptum við styrktaraðila, stuðningsfólk og foreldra.

„Ég bý í hverfinu og krakkarnir mínir eru í Val. Ég ólst hér upp sjálfur og þekki því vel til. Valur er frábært félag með mikinn metnað en við getum gert enn betur. Ég sé mikla möguleika og mitt stærsta verkefni verður að færa fólkið nær fótboltanum, hvort sem það eru foreldrar, stuðningsfólk eða styrktaraðilar. Það hefur verið alltof neikvæð orka í kringum þetta undanfarið og það þarf að breyta því. Við þurfum að gera það saman. Það er gott að vera kominn heim,“ segir Haraldur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.