Fotbolti.net
03.11.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Þrír útileikir á sex dögum hjá Real Madrid

Þrír útileikir á sex dögum hjá Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Real Madrid heimsækir AEK til Aþenu í Meistaradeildinni á morgun áður en liðið heimsækir Valencia í síðasta leik spænsku deildarinnar fyrir landsleikjahlé.
Spánn: Mbappe og Diomande óstöðvandi
TENGT EFNI

Spánn: Mbappe og Diomande óstöðvandi

Það verður þriðji útileikur Real Madrid á sex sólarhringum, eftir sigur gegn Racing Santander um helgina, og er José Mourinho þjálfari ekki ánægður eftir að leiktímar liðsins voru færðir.

„Við fengum stóra gjöf frá La Liga þegar breytt var leikdögunum," sagði Mourinho kaldhæðnislega. „Niðurstaðan er sú að við þurfum að ferðast í þrjá útileiki á sjö dögum og höfum tveimur dögum minna í endurheimt heldur en áætlað var. Vonandi gerum við þá (La Liga) sorgmædda."

Með þessum orðum er Mourinho enn og aftur að saka stjórn La Liga um að reyna að eyðileggja fyrir Real Madrid með að gefa keppinautum þeirra forskot. Real Madrid og Javier Tebas, forseti La Liga, hafa átt í langvarandi deilum í fjölmiðlum.
Þrír útileikir á sex dögum hjá Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.