Kveður Fram eftir tvö tímabil - „Kom mér virkilega á óvart hvað gæðin á fótboltanum hérna eru mikil"

Var í tvö tímabil hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom til Fram eftir að hafa spilað á Spáni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir að hafa endað í 5. sæti í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Isra hefði viljað spila meira á liðnu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það kom mér virkilega á óvart hvað gæðin á fótboltanum hérna eru mikil og hvað leikurinn er ólíkur þeim spænska'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hápunktarnir voru margir, en ef ég á að velja einn þá stendur tilfinningaþrungna kveðjustundin með öllum hjá Fram hæst

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í tvö tímabil hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er 28 ára og kom við sögu í 24 deildarleikjum í fyrra og 21 á liðnu tímabili, en byrjaði einungis sex leiki í sumar.
Hann ræddi við Fótbolta.net um tímann hjá Fram.
„Ég lít til baka á þessi tvö tímabil með ótrúlega fallegar minningar í farteskinu. Þau hafa gefið mér dásamlega vináttu, dýrmæta reynslu og lærdóm sem ég tek með mér," segir Isra.
„Hápunktarnir voru margir, en ef ég á að velja einn þá stendur tilfinningaþrungna kveðjustundin með öllum hjá Fram hæst."
„Auðvitað hefði ég viljað halda áfram. Mér hefur liðið virkilega vel hérna og eins og ég sagði áðan, þá tek ég með mér magnaðar minningar og dýrmæt kynni af yndislegu fólki. En stundum í lífinu, alveg eins og í fótboltanum, þarf einfaldlega að taka erfiðar ákvarðanir."
Nokkur félög sýnt áhuga
Hvernig lítur framtíðin út?
„Hvað framtíðina varðar hafa nokkur félög sýnt mér áhuga. Ég ætla samt að gefa mér smá tíma til að melta hlutina áður en ég tek ákvörðun, og ég held öllum dyrum opnum."
Auðveld ákvörðun að fara til Íslands
Hvernig kom til að þú komst til Íslands fyrir tæpum tveimur árum?
„Ég var að spila á Spáni þegar ÁFRAM-umboðsskrifstofan hafði samband við mig. Þau sögðu mér að Fram hefði áhuga á að semja við mig og vildu vita hvort ég væri til í að taka þetta stóra skref. Við hikuðum ekkert við þessa ákvörðun. Hún var í raun mjög auðveld, því allir sem ég talaði við sögðu dásamlega hluti um Ísland."
Hafa notið þess að vera á Íslandi
Hvernig hefur lífið á Íslandi verið fyrir þig og fjölskylduna?
„Lífið hérna hefur verið alveg meiriháttar. Við höfum fengið tækifæri til að njóta þessa fallega lands og upplifa menningu sem er gerólík því sem við eigum að venjast. Jú, auðvitað hafa komið erfiðar stundir, sérstaklega þar sem við erum svo langt í burtu frá fjölskyldunni. En við höfum líka fengið fullt af heimsóknum frá fjölskyldu og vinum sem voru spennt að skoða þetta magnaða land. Að hafa þau hjá okkur gerði þær stundir miklu auðveldari og enn þá sérstakari."
Hefði viljað spila meira
Varstu sáttur með hlutverk þitt í liðinu?
„Ég verð að vera alveg hreinskilinn og segja að ég var ekki fyllilega sáttur með hlutverk mitt í liðinu. Ólíkt fyrsta tímabilinu mínu fékk ég ekki jafn mikinn spilatíma, og fannst ég ekki vera jafn viðriðinn hlutina eða mikilvægur fyrir liðið. Þetta var helsta ástæðan fyrir því að ég fór að íhuga að rifta samningnum."
„Þegar öllu er á botninn hvolft vill hver einasti leikmaður spila eins margar mínútur og hægt er. Þegar það gerist ekki er lítið annað hægt að gera en að sætta sig við stöðuna, halda áfram að leggja hart að sér og reyna að breyta henni. Ég veit mætavel að það geta ekki allir spilað og að ákvarðanir eru alltaf teknar með hagsmuni liðsins í huga – sem er jú það mikilvægasta."
„Engu að síður kenndi þessi reynsla mér ótrúlega margt. Hún fékk mig til að hugsa hvernig ég gæti lagt mitt af mörkum og stutt strákana í liðinu á annan hátt. Ég tek þetta dýrmæta veganesti klárlega með mér inn í framtíðina."
Mikil gæði í fótboltanum
Var eitthvað sem kom þér á óvart?
„Það kom mér virkilega á óvart hvað gæðin á fótboltanum hérna eru mikil og hvað leikurinn er ólíkur þeim spænska. Deildin er miklu líkamlegri og liðin eru nánast stanslaust að sækja og reyna að skora, allt til loka. Þetta gerir deildina rosalega skemmtilega og áhugaverða á að horfa."
„Að lokum langar mig bara að þakka öllum þeim sem trúðu á mig og gáfu mér þetta flotta tækifæri – að fá að kynnast og njóta þess að vera í þessu fallega landi og spila í þessari deild. Ég vil líka óska gömlu liðsfélögunum mínum alls hins besta og gangi ykkur sem allra best á þessu mikilvæga og spennandi tímabili sem er framundan," segir Isra að lokum.

Kom til Fram eftir að hafa spilað á Spáni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir að hafa endað í 5. sæti í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Isra hefði viljað spila meira á liðnu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það kom mér virkilega á óvart hvað gæðin á fótboltanum hérna eru mikil og hvað leikurinn er ólíkur þeim spænska'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hápunktarnir voru margir, en ef ég á að velja einn þá stendur tilfinningaþrungna kveðjustundin með öllum hjá Fram hæst

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
