07.06.05 - 10:28
Magnús Már Einarsson
Villareal fær Antonio Valencia (Staðfest)




Antonio Valencia hefur gert 5 ára samning við spænska liðið Villareal en þessu greindi liðið frá í dag. Valencia sem er miðjumaður kemur frá Ekvador en þar spilaði hann með El Nacional.
Valencia mun ganga til liðs við Villareal eftir læknisskoðun hjá liðinu þann 20.júní. Villareal sló í gegn á nýliðnu tímabili og endaði í þriðja sæti en liðið kemur úr "smábæ" á spænskum mælikvarða. Þar með mun liðið leika í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en það spilar mjög skemmtilegan fótbolta og verður gaman að sjá hvernig liðinu gengur í Meistaradeildinni.
Sjá einnig:
Smellið hér til að lesa grein um "Litla stórliðið" Villareal (4.apríl 2005)
Sjá einnig:
Smellið hér til að lesa grein um "Litla stórliðið" Villareal (4.apríl 2005)
