07.06.05 - 10:47
Magnús Már Einarsson
Rebrov til Dynamo Kiev (Staðfest)




Sergei Rebrov hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Dynamo Kiev. Rebrov sem er 31 árs kemur til Dynamo frá West Ham eftir misheppnaða dvöl í Englandi.
Rebrov kom til Tottenham frá Dynamo sumarið 2000 á 11 milljónir punda. Honum gekk illa hjá Tottenham og var lánaður til tyrkneska liðsins Fenerbahce árið 2003. Síðastliðið sumar fór hann til West Ham og lék um 20 deildarleiki með liðinu en náði þó aldrei að festa sig í sessi.
,,Ég var félagslaus og hafði nokkra möguleika en Dynamo var eini staðurinn sem ég vildi koma til að endurvekja feril minn. Ég er glaður að vera kominn til baka. Sál mín á heima hér." Sagði Rebrov.
,,Ég var félagslaus og hafði nokkra möguleika en Dynamo var eini staðurinn sem ég vildi koma til að endurvekja feril minn. Ég er glaður að vera kominn til baka. Sál mín á heima hér." Sagði Rebrov.
