Fotbolti.net
07.06.05 - 19:37
Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Þór Gunnarsson til FH (Staðfest)

Ólafur Þór Gunnarsson til FH (Staðfest)
Canon

Mynd: valur.is

Markvörðurinn Ólafur Þór Gunnarsson fær á morgun leikheimild með Íslandsmeisturum FH en hann kemur til liðsins frá Val þar sem hann hefur verið undanfarin ár. Hann skrifaði undir eins árs samning hjá FH en þar mun hann fá það verkefni að vera varamarkvörður fyrir Daða Lárusson sem hefur varið mark liðsins undanfarin ár.
FH hefur ekki haft varamarkvörð í síðustu leikjum sínum en Valþór Halldórsson sem hefur verið varamarkvörður getur ekki verið með liðinu í sumar vegna meiðsla.

Ólafur Þór meiddist illa á æfingu með Val á síðustu leiktíð er hann sleit krossbönd og fór í aðgerð síðasta haust. Hann hefur tekið fullan þátt í æfingum með Val að undanförnu og ætti að vera klár í slaginn ef FH-ingar þurfa á honum að halda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.