Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 07. júní 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Handteknir fyrir að heilsa að nasistasið
Mynd: EPA
Sjö stuðningsmenn Englands voru handteknir í München í gær, þar af þrír fyrir að heilsa að nasistasið.

Búist var við 4.500 stuðningsmönnum Englands í borgina fyrir Þjóðadeildarleikinn gegn Þýskalandi sem fram fer í kvöld.

Tveir voru handteknir eftir samskipti við lögregluna, einn fyrir að nota flugelda innandyra og annar fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri.

Áhyggjur eru af því að frekari vandræði enskra stuðningsmanna gætu haft áhrif á umsókn Bretlands og Írlands um að halda EM 2028.
Athugasemdir
banner
banner