Aron Einar Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var fenginn í stutt spjall fyrir æfingu liðsins í Auburn Alabama fyrr í dag.
Aron var vissulega spurður út í framtíð sína og orðrómana um að hann sé aftur á leið heim í Þór í Bestu deildinni.
„Það eru aðallega sögusagnir frá ykkur,“ sagði Aron kíminn áður en hann bætti við,
„ég hef ekkert falið mig á bak við þetta. Þórsarar vita málin. Ég er í góðum díalog við þá, Sigga [Heiðar Höskuldsson, þjálfara] og stjórnina. Samningurinn í Katar er búinn og ég verð ekki áfram í Al-Gharafa. Ég get staðfest það núna, hef rætt við þá,“ sagði Aron, sem hefur verið samningsbundinn við Al-Gharafa í tvö ár, eftir stutt stop hjá Þór í Lengjudeildinni sumarið 2024. Hann segist þó ekki endilega vera á leiðinni heim núna í sumar en það á eftir að skýrast betur á næstu vikum.
„Það eru einhverjar aðrar viðræður við önnur félög í Katar en það gerist allt mjög hægt þar, bæði út af fjármagni og stríðsástandinu þarna í kring. Þannig maður veit ekki alveg hvað verður en þið verið samt fyrstir til vita þegar ég ákveð að koma heim. Ég ætla að taka því rólega eftir þennan leik [við Argentínu] og fara svo í smá pásu. Svo ákveðum við framhaldið. Markaðurinn heima opnar 15. júlí og markaðurinn í Katar lokar 9. september. Þetta á bara eftir að koma í ljós. Þeir [Þór] vita það samt ef við fjölskyldan erum að fara heim þá fer ég í Þór og ég held að Þórsarar vita það alveg og þið líka,“ sagði Aron Einar Gunnarsson.
Aron ræddi einnig um undirbúninginn fyrir landsleikinn gegn Argentínu í Alabama en viðtalið við Aron má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
























