Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 07. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal reynir að fá efnilegan varnarmann frá PSG
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal hafa sett sig í samband við umboðsmenn franska varnarmannsins Emmaneul Mbemba sem er á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi. BBC greinir frá.

Mbemba er 18 ára gamall miðvörður sem verður samningslaus í sumar.

PSG hefur boðið Mbemba nýjan samning, en samkvæmt BBC er hann opinn fyrir því að fara í ensku úrvalsdeildina og þá helst til Arsenal.

Franski unglingalandsliðsmaðurinn hefur spilað stöðu miðvarðar með unglingaliðum PSG, en Arsenal er að horfa á hann sem framtíðar vinstri bakvörð.

Hann hefur ekki enn spilað keppnisleik með aðalliðinu, en á að baki yfir 50 leiki með unglingaliðum PSG og 23 landsleiki með yngri landsliðum Frakklands.
Slapp
banner
banner
banner